Laugardagur til Legu

úff maður, kona og barn...svaf til klukkan hálf 12 í dag og fór fyrst á fætur klukkan 13 já þrettáááán!!!

Núna, eftir matarleit (nennti ekki í búð í gær), sturtu og munnskol, er ég kominn til meðvitundar. Hræðilegt að spandera deginum svona í bólinu.

En að öðru...fer í aðgerð á mánudagsmorgun og fæ svo leyfi til að dveljast yfir nótt á Bláberjaveginum í góðu yfirlæti eggjaduftsmeistarans og talmeinadrottningar (þá á ég við að hún viti mikið um talmein, en þjáist ekki mér vitanlega).

Ég set stefnuna á það í dag að leggja mig ekki neitt og halda mig sem lengst frá láréttri stöðu.

Lifið heil.

Arnar Thor Svefnpurka eða SvefnBúrka...hmmm

Ummæli

Vinsælar færslur